23. október 2008 klukkan 21:18
Móðurhlutverkið hefur ansi margar hliðar, og margt sem ég gerði mér enga grein fyrir að ég gæti fyrr en ég varð mamma. Til dæmis afrekaði ég það um daginn að fara og pissa með barnið í fanginu! Ég var búin að þurfa að pissa heillengi en drengurinn gerði sig ekki líklegan til að samþykkja neitt annað en móðurfangið! En þetta gat ég!
Ég er líka að verða ansi klár að pikka á tölvu með annarri, þ.e. ef ég er að spjalla á mömmuspjallinu eða msn meðan ég er að gefa gorminum
Annað við móðurhlutverkið; ég er hrikalega utan við mig og gleymin, brjóstaþoka er EKKI bara afsökun!
Áðan tók ég á móti pizzu á brjóstarhaldaranum, eða svo gott sem! var með bolinn niður að framan. Skildi ekkert afhverju gaurinn var svona skrítinn í framan, og fattaði ekkert fyrr en ég byrjaði að borða!! (tek bolinn niður að framan þegar ég er að gefa Ríkharði-gleymdi að laga)
Ég þakka bara fyrir að ég var með haldarann lokaðan!
Kristrún
Kristrún Huld Gunnarsdóttir
08. október 2008 klukkan 18:24
Hef ekkert sniðugt fram að færa, langaði bara að reka ykkur í að nálgast Little Britain USA, bara snihilld!!
*Ást*
Kristrún
Kristrún Huld Gunnarsdóttir
03. október 2008 klukkan 10:59
Vá það sem það snjóaði í gærkvöldi og nótt! Ég er nú ekki beint sátt þar sem mondeoinn er ekki kominn á nagla, og ekki séns ég fari með Ríkharð út í svona færi á sumardekkjunum! Þetta þýðir það að við erum föst heima í dag

Pabbinn er að vinna til 6 svo við verðum að dunda okkur eitthvað saman tvö.
Annars fórum við í leiðangur í gær sem endaði í jólagjafakaupum

Ákvað að taka þann pólinn í ár að dreifa aðeins kostnaðinum, maður er nú einu sinni í fæðingarorlofi, ekki beint vaðandi í seðlum sko! En þetta var bara gaman, fórum í Toys R us og keyptum handa minnstu grísunum

Annars er lítið að frétta héðan, er boðin í innflutningspartý í kvöld. Ekkert voða líklegt að ég komist þar sem snúlli er voða brjóstakall á kvöldin. Ég kannski skrepp þegar hann sofnar.
Segiði mér eitt samt; er ég sú eina sem er ekki að tapa mér yfir efnahagsástandinu hér? alveg pollróleg
Jæja, góða helgi allir
Kv. Kristrún
Kristrún Huld Gunnarsdóttir
28. september 2008 klukkan 11:22
Jahérna, hvernig í ósköpunum datt mér í hug að ég gæti jugglað fullum skóla og 3ja mánaða orkubolta plús heimilishald og kannski smá Me-time!! Mér finnst ég hreinlega vera að drukkna! og það er svo mikið álag í einu fagi að ég næ ekki að læra neitt í hinum tveimur!
Hver sá sem fann upp aðferðafræði í rannsóknum may burn in hell!!
Ahhh gott að losna við þetta

Annars er ég á fullu að búa mig undir að Brynjar fari að vinna aftur, það gerist á þriðjudaginn. Vá það verður skrítið að þurfa allt í einu bara að bjarga sér. Ég get það alveg, er bara orðin góðu vön hehe

Annars sefur litli gormur svo vel á daginn að þetta ætti allt saman að hafast með góðri skipulagningu, það er bara forrit sem ég þarf að installa hjá mér. Hef aldrei verið skipulögð!
En varðandi námið, þetta SKAL hafast, ég nenni ekki að falla og þurfa í upptökupróf again! Langar líka að klára þetta nám bara í einum rykk, ef ég hætti er ekkert víst að ég komi mér í að byrja aftur. Öll rassaspörk vel þegin!
En þó það sé mikið að gera kemur fyrir að við séum einmanna, svo endilega allir að kíkja í heimsókn:) og skot til sumra (þið vitið hver þið eruð). Síminn virkar báðar áttir, er orðin hundleið á fólki segja mér að ég eigi að hafa samband!
PS: munar sentímeter að ég nái að hneppa pre-preggó gallabuxunum mínum

Kv. Kristrún ofurpirraða
Kristrún Huld Gunnarsdóttir
15. september 2008 klukkan 21:12
Jæja, ætli það sé ekki löngu kominn tími á að maður fari að blogga aðeins aftur! Ætla að byrja bara létt, og svara ,,klukkinu" frá Margréti...
Fjögur störf:
Stuðningsfulltrúi – Fyrst á skammtímavistinni á króknum og svo hér í Rvk, bæði á skammtímavistun og heimili fyrir börn. Vinn ss á þeim stöðum núna.
Blönduvirkjun – sumarvinnan mín í tvö ár, góðar minningar og slæmar haha. Einskonar unglingavinna, en ég var mest í þrifum og seinna sumarið var ég með þvottahúsið.
Hótel Áning – þjónaði miskurteisum túristum þar eitt sumar
Nýja Kökuhúsið – Afgreiðsla og bakstur í eitt og hálft ár... var meira að segja næstum farin að læra bakarann!
Fjórar bíómyndir:
Green mile – klassi!
The Shawshank redemption – Enn meiri klassi!
I am Sam – svooo yndisleg
WALL-E – ótrúlega sæt
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Húsavík – frá 2-3 ára til 11 ára
Akureyri – 11-15 ára
Sveitin góða – 15-16 ára
Sauðárkrókur – 16-20 ára
(verð að hafa 5 staði sorry!) Kópavogur – Núverandi heimili mittJ
Fjórir sjónvarpsþættir:
Greys anatomy – snilld snilld snilld!
Gossip girl – er að pissa á mig yfir því að nýja serían er byrjuð!!
Biggest loser – Já, ég sagði það!
Allar stærðir og gerðir af top model – Luv it!
Fjórir staðir í fríum:
Spánn
Frakkland
Danmörk
Kanada
Fjórar netsíður:
Perezhilton.com (mmmhmmm!)
Hi.is
Mbl.is
Gmail.com
Fernt matarkyns:
Kjúlli kjúlli kjúlli!
Grænmetispíta
Fiskur
Skinkuhorn (veikleiki þessa dagana!)
Fjórir óskastaðir akkurat núna:
Heima
Heima
Heima
Í sveitinni
Hmmm... hverja get ég klukkað! Sólveigu, Önnu sys og Guggu (valgarðs)
Kv. Kristrún Ungamamma:)
Kristrún Huld Gunnarsdóttir